
ALBERT SÖLVI
Albert Sölvi Óskarsson lauk framhaldsprófi á saxófón og kennaramenntun úr Tónlistarskóla FÍH. Hann hefur kennt á saxófón og klarinett frá árinu 2013 en mekanismi hljóðfæra og allt sem viðkemur honum vekur áhuga hans.
Í dag er Albert spilandi tónlistarkennari og starfar hjá Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Skólahljómsveit Austurbæjar.
Í dag er Albert spilandi tónlistarkennari og starfar hjá Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Skólahljómsveit Austurbæjar.
„Ég umgengst tréblásturshljóðfæri daglega og áhugi minn fyrir að láta öll hljóðfæri virka sem skyldi hefur aukist með fenginni reynslu. Árið 2017 menntaði ég mig því í hljóðfæraviðgerðum á tréblásturshljóðfæri í Wales hjá Trevor Head: Training in instrumental repair. Tónlistarskólar og skólahljómsveitir víðsvegar um landið, sem og einstaklingar, hafa leitað til mín og með þekkingu minni hef ég t.d. getað lagað hljóðfæri í tæka tíð fyrir mikilvæga viðburði.“
Albert Sölvi Óskarsson
ALBERT SÖLVI ER UMBOÐSAÐILI FYRIR SAXÓFÓNBLÖÐIN FRÁ
Boston Sax Shop


HAFA SAMBAND
ALBERT SÖLVI HLJÓÐFÆRAVIÐGERÐIR
Sendu tölvupóst á klappar[at]klappar.is ef þú þarft að láta gera við hljóðfæri.




